Um Stafagaldur

Stafgaldur - Ævintýralegur læsisvefur fyrir leikskóla er vefsvæði sem fjallar um hljóðkerfisstyrkjandi sögur og leiki handa eldri börnum í leikskóla, oft út frá galdraþema. Efnið er opið og öllum frjálst til afnota. Vefurinn er í umsjá Birte Harksen.

Vefurinn var stofnaður í maí 2019 en byggir að miklu leyti á þróunarverkefni sem Birte Harksen vann með styrk úr Þróunarsjóði leikskóla á árunum 2004-2005. Lokaskýrsla um þróunarverkefnið. Formleg opnun vefsvæðisins átti sér stað 4. október 2019 á haustþingi 8. deildar SL og FSL á Selfossi. Í lok árs 2023 var útlit vefsins uppfært til samræmis við nýtt útlit og virkni á Börn og tónlist.

Vefurinn er að hluta unninn með styrk frá Vísindasjóði FL og FSL og Þróunarsjóði leikskóla Kópavogs.

Myndefni af börnum er birt með leyfi foreldra/forráðamanna.