Stafagaldurssögurnar
Rauði þráðurinn á vefnum eru Stafagaldurssögurnar, ævintýri í tengslum við bókstafi sem börnin eru skrifuð inn í og sem styrkja hljóðkerfisvitund… Meira »
Grunnfléttan í sögunum er ávallt sú sama: Vondi galdrakarlinn hefur tekið eitthvað mikilvægt, eins og t.d. allt grænmeti. Aðalpersónan (leikskólabarn sem heitir nafni sem hefst á bóksafnum í sögunni) leggur af stað til kastala hans til að fá hann til að skila því aftur. Hún er með einhverja aðstoðaveru með sér, t.d. gæludýr eða einhverja furðuveru.
Á leiðinni hjálpa þau einhverjum sem er í vandræðum og fá töfrapoka að launum. Þegar þau koma til galdrakarlsins leggur hann fyrir þau þraut, sem hægt er að leysa með því að taka upp hluti úr galdrapokanum. Oftast eru það 10 hlutir sem hefjast á viðkomandi bókstaf, en það getur þó verið mismunandi.
Aðalpersónan í hverri sögu er það barn, sem aðstoðar við flutninginn. Nafnið er skrifað inn í söguna fyrir hvern flutning. Barnið fær sitt eigið eintak af sögunni til eigu til að styrkja þá tilfinningu, að um þess eigin sögu sé að ræða.
Sláðu inn leitarorð hér að neðan.