![V-saga (Vinir)](/resized_images/512x320/4b119ec354a517fb2ba8376311cd99b76cdb4ad9.jpg?o=DSC09923.jpg)
N-saga (Nammi)
Söguþráður
Það er nammidagur en allt nammið er horfið. Það kemur í ljós að vondi galdrakarlinn er búinn að stela því. Leikskólabarnið hittir naggrís og þau fara saman að krefja hann um það aftur. Á leiðinni hitta þau nykur (dýr sem er eins og hestur en með öfuga hófa og býr niðri í vatninu) og hjálpa honum að losna úr gaddavír. Að launum fá þau töfrapoka sem reynist ómissandi þegar galdrakarlinn vill síðar fá 10 hluti sem byrja á N.
Sagan í pdf (kk og kvk)
Spjöld fyrir kastalann
![](/resized_images/512x/b3e26c1f139c9f2a338814f12591b610ff29e7cb.jpg?o=N1.jpg)
![](/resized_images/512x/3a816926d09893af102a3c8b48bcfea0b4ccbf7b.jpg?o=N2.jpg)
PDF-skjal til útprentunar (2 bls.)
Innihald galdrapokans
- nashyrningur
- naglaklippur
- naut
- nammibréf
- nærbuxur
- næla
- nagli
- nál
- nef (gervinef úr plasti)
- níu (talan níu)
Síðast breytt
Síða stofnuð