Vináttutöfratákn
Við hjálpumst að við að búa til risastórt vináttutöfratákn á gólfinu. Til þess að tryggja að galdurinn virki vel verðum við að tengja alla punktarna saman en þeir eru sex. Töfratáknið býður upp á bæði læsisvinnu og stærðfræðilegar pælingar. Það líkist demanti svo að upplagt er að enda stundina á að syngja saman "Viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina" (Lag: Gull og perlur).
Það er alveg yndislegt að fylgjast með sammvinnu barnana þegar þau eru að hjálpast að við að skreyta vináttutáknið með dómínókubbum í alls konar litum. Ég klippti saman lítið myndskeið til að sýna þetta. Það má sjá hér að neðan.
Ferlið
-
Fyrst festum við sex rauða punkta í hring á gólfið með eins miklu millibili og við gátum. Síðan völdum við punkt til að byrja á og strekktum garn á milli hans og einhvers annars. Börnin skiptust svo á að draga garnið á milli punktanna einn af öðrum þangað til að búið var að teikna upp öll strikin. (Okkur tókst næstum að klára það án þess að þurfa að klippa á bandið).
-
Þegar vináttutáknið var þannig komið með útlínur styrktum við vinaböndin með því að leggja marglita dómínókubba ofan í þær. Útkoman er stórglæsileg.
-
Síðan kemur að því að velja vináttuorð til að setja í reitina inni í töfratákninu. Börnin koma með tillögur og kennarinn skrifar orðin og orðasamböndin niður á litla miða og kemur fyrir inni í tákninu.
-
Hægt er að syngja saman vináttulagið "Gull og perlur" í lokin.
Stærðfræðilegar pælingar
Það er mjög margt stærðfræðilegt sem hægt er að skoða og tala um í sambandi við töfratáknin: punktarnir eru 6, línur frá hverjum punkti eru 5 en samanlagt eru línurnar 5+4+3+2+1=15, formin sem myndast inni í sexhyrningnum eru þríhyrningar og ferhyrningar: í miðjunni eru 6 ferhyrningar (ekki rétthyrndir að vísu) en allt í kringum eru þríhyrningar, samtals 16 talsins.
Það væri líka gaman að bera þetta saman við mynstrin sem koma þegar punktarnir eru annaðhvort færri eða fleiri.